Landsþing SL


Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri 15. -17. maí n.k. Þingið hefst um hádegisbil á föstudegi og lýkur með glæsilegri árshátíð á laugardagskvöldinu. 
 
Farin verður hópferð á þennan viðburð og öllum félögum er heimilt að taka þátt í.
 
Búið er að ganga frá gistingu fyrir félagsfólk og er gert ráð fyrir að farið verði á bílum félagsins. Nú þegar eru 12 manns búnir að skrá sig og enn er nóg pláss fyrir fleiri. Hópur frá okkur mun taka þátt í björgunarleikum sem haldnir verða samhliða landsþinginu, þannig að nóg er um að vera þessa helgi fyrir norðan.
 
Nánari uppl. smellið hér