Útkall F1


Kl 11:52 í dag barst félögum í Björgunarfélagi Vestmannaeyja útkallsbeiðni frá 112 vegna slyss sem varð í Dyrhólaey. Samkvæmt mbl.is voru það fjórir erlendir ferðamenn sem féllu niður þegar brún efst á eyjunni gaf sig.
Björgunarfélagið sendi björgunarbátin Þór á staðinn ásamt sigmönnum en þyrla Landshelgisgæslunnar og fjallabjörgunarfólk af höfuðborgarsvæðinu hefur einnig verið ræst úr.
Kl 12:22 barst okkur svo afturköllun þar sem hægt var að komast að fólkinu frá landi

Aðgerðum á slysstað í Dyrhólaey er að ljúka. Upplýsingar af slysstað hafa verið á reiki en komið hefur í ljós að tveir erlendir ferðamenn féllu þegar brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig. Við það varð til skriða sem tók ferðafólkið með sér niður í fjöruna fyrir neðan.

Björgunarsveitafólk á staðnum áætlar að fallið hafi verið um 40 metrar. Skriðan sem fór af stað er um 100 metra breið. Björgunarlið komst að fólkinu á landi og reyndist því ekki þörf á að síga til þess eins og fyrst var talið.

Ekki er vitað um meiðsli fólksins en verið er að setja það um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem mun fljúga með það á sjúkrahús í Reykjavík.

Tekið af mbl.is