Eykyndill styrkir bs. Þór


Slysavarnardeildin Eykyndill færði bs. Þór veglega gjöf á dögunum.
Hafði deildin safnað 1250 þúsund krónum til að auka björgunargetu skipsins og verður sá peningur nýttur til kaupa á glæsilegri hitamyndavél sem mun gera skipið öflugra í leit og björgun á sjó, ekki síst við erfiðar aðstæður.
Kann Björgunarfélagið Eykyndli bestu þakkir fyrir.