Árshátíð Björgunarfélagsins 2012


Árshátíð Björgunarfélags Vestmannaeyja verður haldin laugardaginn 3. nóvember næstkomandi í húsnæði félagsins.
 Í framhaldi af Neyðarkalli ætlum við að gera okkur glaðan dag.
 Það er ródeó þema þetta árið þannig að allt sem er kántrý - er kúl. Vénaut verður á staðnum, góður matur og mikið húllumhæ. Þá er ekki loku fyrir það skotið að sjálfur Johnny Cash kíki í heimsókn.
 Skráning á árshátíð er í síma 853-6455 eða á lundi1@simnet.is. Sama gildir um Neyðarkallinn.
 Yiiiiiiha!