Óveðursútköll og Neyðarkallasala


 Frá klukkan hálf 12 hefur Björgunarfélag Vestmannaeyja farið í all nokkur verkefni og eru verkefnin enn að týnast inn, ef fólk þarf aðstoð frá Björgunarfélaginu bendum við þeim á að hafa samband við 112.
    Einnig viljum við minna fólk á Neyðarkallasöluna sem hófst í gær. Mjög góð sala var í gær og við byrjum aftur kl 16 í dag og verðum að selja til kl 19:00. Sölustaðir okkar eru fyrir utan ÁTVR, Krónuna og Vöruval. Þá verðum við einnig að selja kallinn á morgun, laugardag frá kl 10:30-14:30.