Óveðursútköll á árshátíð


 Einhverjar eftirhreytur hafa verið á veðrinu því Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út til að hefta fok klæðningar á húsi í nágrenninu meðan árshátíð félagsins stóð sem hæst.
Komu hátíðarhöldin ekki að sök því verkefnið var leyst með prýði.
Fyrr um kvöldið hafði komið inn annað verkefni, en það var leyst í snarhastri enda stutt í matinn.