Unglingastarfið að byrja


Næstkomandi mánudag 7 september verður haldinn kynningarfundur fyrir komandi vetur í unglingarstarfi UD-Eyjar.
Næstkomandi mánudag 7 september verður haldinn kynningarfundur fyrir komandi vetur í unglingarstarfi UD-Eyjar. Starfið er fyrir krakka í 9-10 bekk eða krakka sem eru fæddir á árunum 2000 til 2001 að þessu sinni. Unglingastarfið er margþætt og skemmtilegt, haldnar eru kynningar á ýmsu í starfi sveitarinnar, farið í ferðir, ásamt því sem farið er á landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldin eru að sumri til á tveggja ára fresti og landshlutamót sem er haldið árinn á milli landsmóta. Vonum að sjá sem flesta