Krakkarnir í unglingadeildinni Eyjar erum að fara í ferð á landsmót unglingadeilda slysavarnarfélagsins landsbjargar sem haldið verður á Dalvík dagana 6-10.Júlí og kemur hún með að kosta töluverðan pening, og ætlum við að safna áheitum vegna ferðarinnar.
Áheitið okkar felst í því að við ætlum að vera um borð í gúmmíbjörgunarbát í höfninni í sólahring þar sem við munum skipta okkur í 4 manna hópa og munum við skipta okkur á 3-4 klukkutíma vöktum um borð í bátnum.