Ud-Eyjar safnar áheitum með 3 kílómetra sigi.


Í dag klukkan 13:00 verða félagar í unglingadeild Björgunarfélags Vestmannaeyja með áheita sig í Spröngunni og stefnt er að því að síga samtals þriggja kílómetra leið.
Unglingadeildin er með þessu framtaki að safna fyrir ferð í Gufuskála í apríl en þar ætla unglingadeildir af Suðurlandi að hittast og æfa sig eina helgi.
Unglingadeildin er skipuð krökkum á aldrinum 14.-16.ára og eru um 20 krakkar starfandi í deildinni. Krakkarnir hittast í húsnæði Björgunarfélagsins alltaf á mánudagskvöldum og fer þá fram ýmiskonar þjálfum eða æfingar. Í vetur hefur hópurinn farið í fjallgöngur, hellaskoðun, fjöruferð, haldið skyndihjálparæfingar og haldið skemmtikvöld.
Þeir einstaklingar eða fyrirtæki sem hafa áhuga að styðja unglingadeildina og gefa áheit þá er hægt að senda tölvupóst með ákveðinni upphæð pr meter eða eina heildar upphæð í netfangið: unglingadeild@simnet.is eða í símum 6919577 / 8481720.