Beiðni um aðstoð vegna veðurs.


Í morgun um kl 09:30 var ræst út vegna óveðursverkefna og fystu menn komu fjlótlega í hús.
Verkefnin voru nokkur og meðal annas var gengið frá hraðbát sem hafði verið á kerru niður við smábátahöfn og farið þaðan í ótímabært ferðalag, Einnig var nokkuð um að rúður hefðu brotnað eftir að hafa orðið fyrir fjúkandi hlutum. verkefnum var lokið um kl 12:00.