Sala Neyðarkalls björgunarsveita hefst í dag


Í dag hefst sala Neyðarkalls björgunarsveita um land allt. Líkt og áður er um að ræða sölu á litlum neyðarkalli á lyklakippu og í ár er hann eftirmynd rústabjörgunarmanns. Sjálfboðaliðar félagsins munu bjóða Neyðarkall til sölu á flestum þeim stöðum er fólk kemur saman, svo sem í verslanamiðstöðvum, við verslanir, útsölustöðum ÁTVR  Við hvetjum almenning til að taka vel á móti sölufólki okkar og stuðla þannig að öflugri björgunarsveitum.
hér í eyjum verðum við á nokkrum stöðum og ef fólk hefur ekki orðið okkar var og óskar eftir að fá Neyðarkall þá er hægt að hringja í síma 8966815 og munum við þá koma að vörmu spori og klára þetta.