Aðalfundur Björgunarfélags Vestmannaeyja 2016


 Aðalfundur Björgunarfélags Vestmannaeyja og Björgunarbátasjóðs Vestmannaeyja verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl 20:00.
Aðalfundur Björgunarfélags Vestmannaeyja og Björgunarbátasjóðs Vestmannaeyja verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl 20:00. Fundurinn verður haldinn í björgunarmiðstöðinni að Faxastíg 38 og hefst með borðhaldi kl 19:00.
 
Dagskrá aðalfundar:
1. Formaður setur fundinn og skipar fundarstjóra og fundarritara.
2. Undirritun eiðstafs.
3. Skýrsla stjórnar og umræður.
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Lagabreytingar.
6. Kosning formanns.
7. Kosning stjórnar og tveggja varamanna.
8. Skýrsla minningarsjóðs.
9. Kosning þriggja manna stjórnar minningarsjóðs.
10. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
11. Önnur mál.