Áframhaldandi sala í dag
Áframhaldandi sala í dag á neyðarkallinum. Við verðum við Krónuna, ÁTVR og Vöruval frá 11-16.
Neyðarkall 2014
Nýjasti kallinn kominn á sinn stað í Geisla. Þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn og minnum alla á að kaupa karlinn.
Neyðarkall 2014
Í ár er Neyðarkallinn með línubyssu en um 2500 manns hafa verið bjargað úr strönduðum skipum með fluglínutækjum.
Neyðarkall björgunarsveitanna
Framundan er hið árlega sala neyðarkall björgunarsveitanna en þetta árið fer það fram dagana 6.- 8. nóvember.
Nýliðastarfið hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja 2014
Nýliðastarfið hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja hefst aftur miðvikudaginn 3. september fyrir 16 ára og eldri, endilega kíkið á okkur að faxastíg 38 ef þið hafið áhuga.
Aðalfundur Björgunarfélags Vestmannaeyja
Aðalfundur Björgunarfélags vestmannaeyja og Björgunarbátasjóðs Vestmannaeyja.Verður haldinn fimmtudaginn 10 apríl og hefst kl:20:00.Venjuleg aðalfundarstörf.önnur mál löglega borinn upp.lagabreitingar. borðhald fyrir fund hefst kl 19:00.stjórnin.
Jólakveðja
Björgunarfélag Vestmannaeyja óskar félögum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Dagskráin
Jæja þá er dagskráin komin á netið. Það sem við hvetjum alla til að skoða dagskránna en markverðast er að gert er ráð fyrir að félagsfundur er fyrsta fimtudag í hverjum mánuði. Neyðarkallinn er seldur 31 Okt til 2 nóv,...
Félagsfundur, nýliðakynning og unglingardeild
Jæja þá er vetrarstarfið að hefjast með fullum krafti. Miðvikudaginn næstkomandi verður félagsfundur til að byrja árið og eftir fundinn ætlar Ármann Ragnar Ægisson að vera með ljósmyndasýningu og sögur ef ferð nokkra félaga á Kilimanjaro nú í ágúst. Á fimmtudaginn verður svo...
Ferð á Þumal í júní 2013
Þrír strákar úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja fóru ásamt fjórða manni upp á Þumal sem staðsettur er á Vatnajökli. Þumall var fyrst klifinn af meðlimum HSV árið 1975 svo tindurinn er stolt Vestmannaeyskra klifrara. Ferðasöguna má finna hér.
Félagsæfing á sunnudaginn kl. 13
Félagsæfing verður haldinn í tengslum við fyrstu hjálparnámskeiðið sem hófst í kvöld og eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til að taka þátt.Nauðsynlegt að hafa alvöru æfingar innan félags á milli flugslysaæfinganna!
Fyrstu hjálpar námskeið fyrir eldri nýliða og fullgilda
Hefst 1. maí kl. 19:30.Og félagsæfing í framhaldinu.
Skyndiákvörðunarjeppaferð um helgina - námskeiði frestað
Björgunarfélagið fer í jeppaferð helgina 12.-14. apríl. Farið með fyrstu ferð á föstudegi og komið heim með seinustu ferð á sunnudag. Gist verður í skála sem tekinn hefur verið á leigu.6 sæti eru laus - fyrstur kemur, fyrstur fær -...
Aðalfundur Björgunarfélags Vestmannaeyja
Aðalfundur Björgunarfélagsins verður haldinn fimmtudaginn 18. apríl kl. 20.Borðhald hefst kl. 19.Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í stjórn eru beðnir um að hafa samband við stjórnina.
Fyrsta hjálp 1 fyrir eldri nýliða og fullgilda
Fyrsta hjálp 1 verður kennd í Vestmannaeyjum helgina 11.-14. apríl af Einari Erni Arnarssyni.Það kemur inn ný þekking á hverju ári þannig að ef langt er liðið hvetjum við fullgilda meðlimi að nýta sér þetta tækifæri.
Laugavegsganga í kyrruviku
Nokkrir félagar úr BV ætla að reyna við Laugaveginn í vikunni og óska eftir öðrum sem hafa áhuga á að fara með.
Námskeið í vikunni
Tvö námskeið verða haldin í húsnæði félagsins í vikunni og eru bæði opin öllum félagsmönnum sem áhuga hafa.
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í húsnæði félagsins fimmtudaginn 7. feb. kl. 20.Allir félagsmenn hvattir til að mæta og kynna sér hvað er á döfinni þessa dagana.Starfsmaður hefur lofað að bjóða upp á góðgæti.
Kynningarfundur vegna nýliðunar 25 og eldri
Björgunarfélag Vestmannaeyja mun á 95. starfsári sínu taka upp þau nýmæli að taka inn með skipulögðum hætti nýja meðlimi sem eru 25 ára eða eldri.Kynningarfundur þess efnis verður haldinn í sal Skátaheimilisins fimmtudaginn 31. janúar kl. 20.Fundur þessi verður í...